Hólar í Hjaltadal

Hólar í Hjaltadal (SH).

Náttúra Hólastaðar er tilkomumikil. Hólar eru líka sögustaður. Á miðöldum var þar fjölmennt þorp, skóli, prentsmiðja og eins konar miðstöð kirkju og veraldlegra málefna. Hér spígsporuðu ýmsar þekktar persónur Íslandssögunnar sem þið getið eflaust margar nafngreint…. Enn er mikið um að vera á Hólum. Þar er til dæmis háskóli!

Byggðin er falleg og stílhrein. Kirkjan stillir sér fremst, turninn upphefur hana og svo er reisulegt skólahúsið að baki. Að baki þorpsins rís fjallið Hólabyrða í öllu sínu veldi. Þess má geta að fjallið er hæsta fjall við byggð á Íslandi! En Hólabyrða er ekki eina fjallið. Dalurinn er umkringdur fallegum fjöllum sem halda utan um Hóla ef svo má segja.

Á vordegi í Gvendarskál (AÓV).

Gvendarskál er sylla í Hólabyrðu sem nefnd er eftir Guðmundi biskupi góða. Þaðan féll stór skriða og myndaði hólana sem þorpið stendur á. Á láglendinu var votlent (fyrir tíma framræslu) en á hólunum sem stóðu uppúr votlendinu var tilvalið að setja niður hús. Víða sjást lækjarsprænur renna í átt til Hjaltadalsár og í fjöllunum eru gil.

Skóli og náttúra
Á Hólum er ýmis konar starfsemi. Þar er t.d. háskóli. Kynnið ykkur starfsemi hans og athugið hvað er hægt að læra í skólanum. Öll fögin tengjast náttúrunni á einhvern hátt – hvernig?  

Merki árstíðanna
Myndin af náttúrubarninu í Gvendarskál var tekin á vordegi, en hvenær var hin myndin tekin? Hvernig getið þið vitað það?