![](https://natturaskagafjardar.is/wp-content/uploads/2016/10/berggangarDB-225x300.jpg)
Berggangar myndast þar sem eldkvika storknar neðanjarðar, t.d. í æð sem liggur að eldfjalli eða einfaldlega í sprungum í jarðlögunum. Berggangar verða ekki sýnilegir fyrr en bergið í kring hefur molnað frá. Berggangar eru oft úr harðara bergi en bergið umhverfis og rofnar því seinna.
![](https://natturaskagafjardar.is/wp-content/uploads/2016/10/berggangur.jpg)