Veður

Kálfsstaðafjall með skýi (SH).

Veðurfar í Skagafirði er misjafnt enda er svæðið víðfeðmt og aðstæður fjölbreyttar. Á myndum og kortum Veðurstofunnar má bera saman veðrið í Skagafirði og annars staðar á landinu. Aðstæður hafa áhrif á veðrið. Meðal þess sem skiptir máli er sjórinn, t.d. nálægð við hann og hitastig hans. Sömuleiðis skiptir máli hvernig landslagið er og hæð yfir sjávarmáli.

Þessar myndir sýna veðrið á Alexanderflugvelli á Sauðárkróki síðasta sólarhringinn:

Rauða línan sýnir vindhraða og sú brúna hviðurnar.

Rauða línan sýnir hitastigið.
(Ef hitastig lækkaði niður í það sem bláa línan sýnir myndi raki loftsins þéttast. Í úrkomu liggur bláa línan og sú rauða saman.)

Veðurathuganir