Landbúnaður
- Velferð dýra.
- Nýta vel áburð og bera á tún á réttum tíma. Berist mikill áburður eða næringarefni í ár og vötn getur það verið slæmt fyrir lífríkið þar.
- Varast eitur í landbúnaði, t.d. skordýraeitur eða illgresiseyði.
- Hvíla rýrt land. Ofbeit fer illa með landið.
- Ganga vel frá sorpi og flokka það. Rusl sem er látið grotna á bæjunum er ljótt og slæmt fyrir umhverfið.
- Takmarka útblástur, t.d. vinnuvéla, eins og unnt er.
- Forðast framræslu votlendis (vegna lífríkis og áhrifa á loftslag).
Aðrar atvinnugreinar
Fleiri atvinnugreinar en landbúnaður byggja á nýtingu náttúrunnar í starfsemi sinni. Þar má sem dæmi nefna ferðaþjónustu sem er stærst atvinnugreina á Íslandi. Flestir ferðamenn koma til landsins til þess að njóta náttúrunnar. Aðrar greinar sem tengjast beint náttúrunni eru fiskveiðar, fiskeldi, rannsóknir og þekkingarstarfsemi, iðnaður o.fl.
Virkjanir
Íslendingar framleiða rafmagn með því að virkja vatnsafl. Í Skagafirði eru Skeiðsfossvirkjun í Fljótum og Gönguskarðsárvirkjun á Sauðárkróki, auk smærri virkjana.
Oft hefur verið rætt um að virkja Jökulsárnar og eru tveir kostir ræddir: Skatastaðavirkjun og Villinganesvirkjun. Þess má geta að 5% rafmagnsins sem framleitt er á Íslandi er nýtt á heimilum, 15% eru nýtt í íslenskum fyrirtækjum, en langmest fer til stóriðju eða 80%.
Ljóst er að Skatastaðavirkjun og Villinganesvirkjun myndu hafa mikil áhrif á umhverfið, meðal annars draga úr framburði, breyta búsvæðum og hafa mikil áhrif á samfélög lífvera, ekki síst á neðsta hluta Héraðsvatna, í flæðimýrunum og meira að segja á landgrunninu úti í sjó. Lesa um vistkerfi Jökulsánna og Héraðsvatna.