Vatn seytlar og streymir um berggrunninn og eftir því sem neðar dregur verður bergið heitara og vatnið hitnar að sama skapi. Heitt vatn getur leyst upp efni í berginu. Þegar vatnið með sínum uppleystu efnum stígur upp eða streymir þangað sem bergið er kaldara kólnar vatnið og uppleystu efnin setjast til í holum og glufum og mynda holufyllingar.
Holufyllingar eru oft mjög fallegir steinar og finnast helst þar sem mikið rof hefur orðið, enda myndast þeir neðanjarðar. Glerhallar eru ein tegund holufyllinga sem finnst í miklu magni í Glerhallavík á Reykjaströnd. Þegar sjórinn hefur náð að pússa glerhalla líkt og í Glerhallavík líta þeir út eins og hvítt gler. Glerahallarnir eru friðaðir, enda er skemmtilegast að skoða þá á staðnum.