Stöðuvötn eru af ýmsu tagi og þau eru mörg í Skagafirði (sjá kortið.) Sum eru stór, önnur lítil, sum eru á grónu landi, önnur á berangri, sum eru upp til heiða, önnur á láglendi. Allt þetta skiptir máli fyrir lífríkið.
Stærstu vötnin í Skagafirði eru sjávarlón: Miklavatn í Borgarsveit, Höfðavatn á Höfðaströnd og Miklavatn í Fljótum. Malarrif skilja þau frá sjónum. Vatnið í sjávarlónum er gjarnan salt. Miklavatn í Borgarsveit er þó ekki lengur nátengt sjó og vatnið í því er ekki salt.
Stífluvatn í Fljótum er mjög stórt. Það myndar uppistöðulón fyrir Skeiðsfossvirkjun. Vatnið var stíflað og vatnsborðið hækkað. Við það stækkaði vatnið talsvert og margar jarðir lögðust í eyði. Upp af Sæmundarhlíð eru Hólsvötn. Þau eru kunn veiðivötn. Vatnshlíðarvatn er líka lífmikið vatn og hefur verið mikið rannsakað. Vötnin eru mörg á Skaga, frá láglendi til fjalla. Þau eru mörg frjósöm með miklum fiski.
Lesa nánar um einstaka vötn og fiska.
Stöðuvatn
Veljið ykkur vatn í Skagafirði og aflið ykkur upplýsinga um það. Þið getið ef til vill lesið ykkur til í árbókum Ferðafélags Íslands, í Byggðasögu Skagfirðinga, í gögnum frá Háskólanum á Hólum, Veiðimálastofnun, Hafrannsóknastofnun eða fræðst af þeim sem eru kunnugir um vatnið. Farið að vatninu ef hægt er. (Sama verkefni er einnig á síðu um lífríki votlendis).
- Hvað heitir vatnið?
- Hvar er það?
- Hvað er það stórt?
- Renna ár eða lækir í vatnið? Renna ár eða lækir úr vatninu?
- Finnið loftmyndir af vatninu.
- Hvernig er umhverfi vatnsins?
- Er fiskur í vatninu?
- Lýsið botninum við ströndina. Er hann grýttur, sendinn eða leirkenndur?
- Rannsakið lífríkið í vatninu við ströndina og greinið skilmerkilega frá. Gott er að nota litla háfa.
- Sjáið þið plöntur og þörunga?
- Getið þið veitt einhver smádýr?
- Sést til fiska?