Með sömu aðferðum og við teiknum Óla prik mætti rissa upp Skagafjörð:
Skagafjörður er mikill og breiður.
Inn af botni fjarðarins er meginhéraðið. Þar er sléttlent, votlent og gróðursælt. Þar kvíslast Héraðsvötnin um. (Afmarkað með grannri rauðri línu á myndinni.)
Beggja vegna meginhéraðsins og út með firðinum eru fjöll. Þau eru meiri austan við. Þar er sjálfur Tröllaskagi. Inn í hann ganga nokkrir dalir. (Grænar merkingar á mynd.) Vestan til er Skagi.
Inn af meginhéraðinu og alla leið upp á hálendið ganga tveir miklir dalir, Austur- og Vesturdalur. Um þá renna jökulár frá Hofsjökli. Árnar sameinast niðri í byggð og heita þá Héraðsvötn.
Á firðinum eru áberandi Drangey og Málmey.
Undirlendi Skagafjarðar er 5.527 ferkílómetrar.
Að átta sig!
- Lesið textann hér að framan vel og endursegið hann síðan.
- Skoðið vel áttirnar í Skagafirði. Hvernig liggur fjörðurinn? Hvoru megin Hérðsvatna búið þið? Hvert fer fólk sem fer yfir um? Hverjir búa fyrir handan?