Á leið í Örlygsstaðabardaga

Jóhannes Geir (1927-2003) var skagfirskur myndlistarmaður. Hann var afkastamikill og mikils metinn. Hann var áhugamaður um fornsögurnar og tók þær fyrir í verkum sínum á tímabili. Myndin er í eigu Árskóla.

  • Skoðið landslagið á myndinni. Hvaða fjöll eru þetta og hvaða á rennur þarna? 
  • Hvar eru Örlygsstaðir?