Drangey ásamt Kerlingu

Drangey, Kerlingin og Málmey séð frá Reykjum á Reykjaströnd (SH).

„Hún gnæfir eins og rammbyggileg klettaborg eða kastali upp úr hafinu úti á miðjum Skagafirði, sjest víða að, skörp í línum, traustleg og ábúðarmikil.“

Styst er í Drangey frá Reykjum á Reykjaströnd. Drangey er kjarni eldfjalls sem gaus á seinni hluta jökultímans. Eyjan var langtum stærri en hún er í dag og sjást þess merki á hafsbotni. Bergið í Drangey heitir móberg, en það myndast í gosi undir jökli.

Drangey er vel gróin og þar er mikið fuglalíf og fjör í þverhníptum björgum. (Sjá umfjöllun um fuglana.) Í hafinu í kring er ekki óalgengt að sjá seli og hvali.

  • Hér er óstytt útgáfa þjóðsögunnar: Vígð Drangey.
    Lesið söguna og takið sérstaklega eftir því sem sagt er um a) landslagið og b) lífríkið. Skráið hjá ykkur minnispunkta. 
  • Setjið ykkur í stellingar listamanns og íhugið hvernig þið gætuð látið Drangey færa ykkur innblástur. Vinnið listaverk eða lýsið því. 
  • Af hverju er talað um Drangey sem matarkistu Skagfirðinga?