Af ýmsum ástæðum geta myndast misfellur í landslagi þar sem vatn rennur fram af og myndar fossa.
Til þess að foss haldist verður hart jarðlag að halda honum uppi. Slíkt jarðlag er kallað fossberi og myndar það fossbrúnina. Undir er svo mýkra lag, sem fossinn skellur á og grefur um leið undan harða laginu. Við það fer að brotna framan af því. Á löngum tíma færist fossinn smám saman upp eftir ánni.
Reykjafoss, í ánni Svartá, er með stærstu fossum í Skagafirði. Fossberinn þar er mikill og harður berggangur.
Í Skagafirði eru víða fossar, sem ekki hafa öðlast þann heiður að fá sérstakt nafn! Þar má þó sjá vatn göslast um flúðir eða falla í giljum og er meira en vel þess virði að njóta þessara „vatnsfalla“.
[[]] Fossinn ykkar
- Heimsækið foss í Skagafirði.
- Takið mynd af fossinum.
- Heitir hann eitthvað?
- Hvar er hann? Hvað heitir áin sem hann er í?
- Sjáið þið fossberann?
- Sendið mynd og texta svo aðrir geti skoðað.