Júnínætur bera
ljósið
himnaljósið mjúka
. . . og ljósið
smýgur inn í mann
eins og fiskur gegnum vatn
spriklar þar
líkt og nýrunninn
lax í neti
sleppur út aftur
undir morgun . . .
Eftir situr silfurhreistur
í hjartamöskvunum
Og þú leggur netin næstu nótt
Eyþór Árnason
Til umhugsunar
- Hvað þýðir orðið nót og hvernig er það í fleirtölu? Tengist þessi spurning ljóðinu!?
- Hvernig tilfinning ætli sé að vera með silfurhreistur í hjartamöskvunum?
Eyþór Árnason (1954) er leikari og skáld. Hann er frá bænum Uppsölum í Blönduhlíð. Ljóðið er úr fyrstu ljóðabók hans Hundgá úr næstu sveit en fyrir hana fékk Eyþór Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.