Skagafjarðarsýsla nær yfir stórt svæði. Miðja Íslands er í Skagafirði norðaustan við Hofsjökul!
Í Skagafjarðarsýslu eru mörg byggðarlög og sveitir. Gott er að kunna á þeim skil.
Þéttbýlisstaðir eru merktir með rauðu á kortinu en sveitirnar með ýmsum litum. Smellið tvisvar á kortið til að stækka það.
Lesið á kort
- Hvar er heimili ykkar á kortinu? Hvað heita sveitirnar í kring?
- Þekkið þið Skagfirðinga sem búa fyrir utan ykkar bæ eða sveit? Hvar eiga þeir heima?
- Hvað heita þéttbýliskjarnar Skagafjarðar og hvar eru þeir? Hvað einkennir hvern stað?
- Skoðið kortið vel í heild sinni.