Málverk eftir listamanninn Eggert Pétursson f. 1956. Vinnuheiti þess var Norðurland-Tröllaskagi. Óvíða er fjölbreytni plantna jafn mikil og á fjöllóttum og snjóþungum Tröllaskaga.
Verkið er í eigu Saastamoinen Foundation og er í vörslu Emma safnsins í Espoo í Finnlandi.
- Skoðið myndina vel. Finnið plöntur sem þið kannist við. Hvað skyldu þær heita?
- [[]] Skoðið verk Eggerts á vefnum hans og prófið að mála ykkar eigin skagfirsku plöntumynd í svipuðum dúr og Eggert gerir.